Árdeigi orðið Síðdeigi........eða bara eftirmiðdegi

Það sem ég held að sé að gerast þarna er að nú á bankinn að taka félagið utan um þessar verslanir(árdeigi, minnir mig) og allt látið falla og renna sitt skeið, bankin tekur skuldirnar á sig eða öllu frekar almenningur borgar þetta í einhverju formi.

Síðan er sett á stofn nýtt félag... "síðdeigi" og þá opnar ný búð sem er skuldlaus og sömu eigendur.

En ef þið viljið lán hjá viðskiptabanka Árdeigis.... getið þið örugglega fengið lánið í fötum í stað íslensku krónunnar... þurfið allavegana ekki að hafa áhyggjur af því að fötin sem þið fáið lánuð rakni eða fuðri upp :) Hmmm.... hvaða banki ætli það sé?

Nei ég veit ekki... ekki kannski frekar en neinn annar!!!


mbl.is Verslunum Next og Noa Noa lokað tímabundið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með fjármálaeftirlitið? Á það ekki þá að axla sömu ábyrð?

Mikið rosalega er ég orðin þreytt á þessu flokkskjaftæði!!!!
Það er fínt að beina athyglinni á Seðlabankastjórn og heimta að þeir og forysta ríkisstjórnarinna axli ábyrgð. (lesist Sjálfstæðisflokkurinn)

Afhverju lýsti Samfylking ekki vantrausti einnig á Fjármálaeftirlitið á sama tíma og þeir lýstu yfir vantrausti á Seðlabankastjórn??

Er hugsanlegt að í lykilstöðum innan Fjármálaeftirlitsins séu "vinir og vandamenn" samfylkingar?
Nei ég bara spyr.

 


mbl.is Davíð á ábyrgð forystu ríkisstjórnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband